Monday, September 11, 2006

9/11

Í dag er 11. september og það þýðir að það eru 5 ár síðan árásin á the Twin Towers var gerð. Það koma mér reyndar alveg skemmtilega á óvart hvað egninn kennari nefndi þetta, en allir þættir í sjónvarpinu nefna þetta. Ég bjóst alveg við því að kennsla yrði felld niður og allir myndu safnast saman og syrgja en ekkert þannig bull. Ég er búinn að vera hérna núna í rúmar 3 vikur og allt er að ganga upp. Ég pantaði mér nokkur pláköt til að skreyta veggina hjá mér fyrir útan íslenska fánann, þau koma á morgun. Svo náði ég að panta mér Herbalife, maður tekur alveg vel eftir því hvað það eins og allt annað er miklu ódýrara hérna í kanalandinu.
Svo ætlar þjálfarinn minn að hjálpa mér með þessi blessuðu bílavandræði og vonandi gengur það allt upp því annars deyr gamla Bonnie. Annars var helgin bara virkilega ljúf, bara chill og allt rólegt. Á laugardeginum fórum við í grill hjá aðstoðarþjálfaranum sem var geðbilað gott, fáranlega gott að fá almennilegan mat eftir heila viku hérna í kaffiteríunni. Eftir það fórum við á amerískan fótboltaleik sem var mjög leiðinlegur því að Catawba var 35-0 yfir í hálfleik þannig við fórum bara.
Áðan var svo mílan í annað skiptið áðan og ég bætti mig um 10 sekúndur og hljóp hana á 5:45 og á mánudaginn næsta þarf ég að reyna að bæta þann tíma. Svo vill ég minna fólk á að maður á afmæli á fimmtudaginn og ég býst við að fá einhverjar gjafir sendar til mín!! Neinei ég er að gantast eitthvað...Það þýðir að maður verður að gera eitthvað af sér um helgina, en núna er ég farinn á aðra æfingu...

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Ég hleyp míluna á tæpum 5 mín þannig að þú ættir að geta bætt þig aðeins.
Þegar ég fór í fyrra var Bonnie í topp standi, Helgi er með tárin í augunum yfir þessari meðferð á Bonnie, farðu vel með þessa elsku. Tek púlsinn á þér fljótlega.

Gummi bró

6:19 AM  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með daginn Finnsla! Loksins mattu drekka löglega í USA. Hafðu það sem allra best kútur. Hvað segirðu....eitthvað að gerast í Skype-málum? Annars er það bara MSN. :)

12:06 PM  

Post a Comment

<< Home