Sunday, September 03, 2006

Góð chill helgi

Góð helgi að baki hérna í Salisbury. Á föstudeginum kíktum ég og Isaak til hafnaboltastrákana og vorum aðeins að taka á því þar, en það var samt voðalega rólegt. Isaak þekkir strákana ekki neitt þannig maður varð víst að kynna hann fyrir þeim og hann fílaði þá alveg. Enda eru þeir soddan vitleysingar að maður verður einhvern veginn að fíla þá. Þetta er svipaður pakki og með Arinbjörn, hann er soddan sauður að maður einhvern veginn verður að fíla hann. Í gær fórum við síðan í mallið Concord Mills þar sem maður varð að kaupa sér eitthvað smá en samt ekki nógu mikið þannig ég býst við að maður skelli sér þangað aftur bráðlega. Ég keypti mér klukku, 2 stuttbuxur, 2 boli, stutterma skyrtu. Ja það er satt ég keypti mér enga skó sem er nokkuð sjaldgjæft hjá mér.
Svo um kvöldið gerði ég bara bókstaflega ekki neitt, ég var bara chillandi eitthvað inná herbergi og glápandi á tv. En á morgun er svokallaður Labor Day sem þýðir að það er enginn skóli og við erum ekkert á æfingu nema hvað við spilum um kvöldiðsem er all svakalega ljúft því að þá verður enn meira chill 2night. En núna ætla ég að fara sð skjóta og lyfta smá...
Svo styttist í að maður verði 21árs sem þýðir að maður má löglega kaupa áfengi hérna í Salisbury og þá verður eitthvað mikið gert af sér. Svo vill ég minna fólk á að fara á landsleikinn í körfu í höllinni á miðvikudaginn!!!

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hvaða skot er þetta dvergurinn þinn á maður að þurfa að koma þarna út og sýna þér hvar Davíð keypti ölið.
hahahaha

1:22 PM  
Anonymous Anonymous said...

hahaha ég varð að skjóta smá á þig... en þú mátt alveg reyna að sýna mér hvað þessi Davíð keypti ölið

1:38 PM  
Anonymous Anonymous said...

Blessaður Finnsla. Hvernig eru nýju leikmennirnir? Ertu ekki í miklu betra formi en flestir þarna úti??? Þú varst nefnilega svo helvíti duglegur að æfa í sumar! Ég er ekki búinn að spila körfubolta í 6 vikur. Er bara að lyfta. :/ Ég hef aldrei tekið svona langa pásu frá körfunni áður....held að ég verði að fara að drullast til að finna eitthvað lið hérna úti.

10:50 AM  
Blogger JP said...

Ég trúi því náttúrulega ekki að þú hafir ekki keypt neina skó!!!! Þú klárlega stolist til að kaupa eins og eitt par!

Já og Finnur.... þú ert alveg jafnmikill sauður og Addi :)

1:37 PM  
Anonymous velvet bed sheet wholesale said...

Hvaða skot er þetta dvergurinn þinn á maður að þurfa að koma þarna út og sýna þér hvar Davíð keypti ölið.
sofa and chair covers
multiyork sofa covers

2:38 AM  

Post a Comment

<< Home