Thursday, October 26, 2006

Núna er aðeins vika í fyrsta leikinn á tímabilinu og ég get ekki lýst því hvað ég er tilbúinn að fara að keppa, mér er alveg sama að þetta sé aðeins æfingaleikur. Þetta lið heitir Athletes in Action og eru fyrrverandi háskóla leikmenn, þeir eru alveg nokkuð góðir en við eigum samt alveg að vinna. Fyrr leiktímabilið vorum við settir í 4 sætið í riðlinum sem mér finnst vera algjört kjaftæði því að við eigum góðan möguleika á að vinna béskotans riðilinn en það verður samt alveg vel strembið. Ég varð bara að skrifa aðeins um körfuna hjá mér þessa stundina.
Ég var að lesa um KR áðan og sá að þeir töpuðu á móti Skallagrím og eru þá með recordið 2-1 sem er alveg nokkuð gott því að þeir eru búnir að vinna Drulluvík a.k.a. Keflvík og Snæfell, greinilegt að Benni er að gera góða hluti með liðið. Ég vill hvetja alla til að fylgjast með KR í vetur því að ég hef trú á því að dollan endi í vesturbænum, áfram KR!!!
Annars er allt að gerast, í fyrstaskiptið í nokkur ár hef ég ekki við nein meiðsli að stríða( knock on wood) og er allur að komast í hörkuform. Er samt kominn með skemmtilega mikið ógeð af skólanum en mér gengur vel í flestum fögum en ég nenni að blaðra um það.
En já Arinbjörn ég skal redda mynd af Heather í outfittinu bara fyrir þig kall( djöfulsins Dirty Dawg) hann mun aldrei breytast, hann er einn af þeim sem heldur því fram að hann sé ekki hundur( gaur sem reynir við flest allar stelpur sem hann sér þegar hann fær sér smá öl) til dæmis er Ómar hundur og Árni er konungur hundanna( sorry Ommi þetta er skot númer 3). Já ég hlakka til að hitta þessa blessuðu vitleysinga en núna er minna en 2 mánuðir þangað til að ég kem til baka á klakann. Smá söknuður í gangi en samt allt í góðu....

10 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hvaða skot eru þetta ég er sko enginn hundur þú ert bara sjálfur hundur.
En það er alveg rétt að árni er sko hundur og það svona lítið chiwowa kvikindi sem heldur ekki kjafti.
Kv. Arinbjörn

8:40 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hlökkum ýkt til að fá þig heim í Norðurbrúnina Finnur minn! Og það verðu sko awesome-o djamm á okkur um jólin!:D (er búin í prófum 21. des samt...:(..) en hvað verðuru lengi á jakanum????

9:11 AM  
Anonymous Anonymous said...

Taldi um skot þá held ég að Finnur haldi á hríðskotarifli,enn passaðu þig kallinn því að þegar þú verður orðinn skotlaus þá verðuru nokkuð örugglega skotinn í hausinn af eitthverjum öðrum P,s Finnur þú veist að ég elska þig líka !!! DOGY !!! Big Ó

1:25 PM  
Anonymous Anonymous said...

jæja, Finnur og Ommi gera ekki annað en tjá ást sína á hvor öðrum...þetta fer að detta í gott handrit að mynd starring Meg Ryan.

6:35 PM  
Anonymous Anonymous said...

Jebb það er rétt Eymi og kannski bara kannski getum við reddað þér aukahlutverki í myndinni :)kv,big Ó

3:14 PM  
Anonymous Anonymous said...

haha finn ég lykt af öfundsýki Eymi minn???

4:27 PM  
Anonymous Anonymous said...

já :-(

5:49 AM  
Blogger JP said...

Finnur, þú ert nú hálfgerður Dawg líka!!! Þú veist alveg hvað ég meina.... :)

Sorry með síðuna... er alltaf á leiðinni að gera þetta... Æ, þú veist hvernig ég er...

4:36 PM  
Anonymous Anonymous said...

Stundum vildi ég óska þess að ég væri fröken Finnsa :-(

5:47 AM  
Blogger yanmaneee said...

golden goose sneakers
yeezy
jordan shoes
harden shoes
longchamp
hermes belts
louboutins
nike cortez
michael kors outlet online
adidas yeezy boost

11:48 PM  

Post a Comment

<< Home