Friday, November 17, 2006

Loksin loksins...

Þetta er í fyrsta skiptið í langann tíma sem ég kemst inná netið því að tölvudeildin hérna í skólanum var að skipta um aðstæður sem þýddi að netið hérna lá niðri í um 2 vikur. Við erum búnir að spila einn æfingaleik á móti J.C. Smith á útivelli og sá leikur tapaðist með einu stigi 74-73 en við vorum ekki að hitta skít bókstaflega. Ég spilaði 25 mínútur skoraði 12 stig og tók 8 fráköst sem ég er alveg sáttur með. Salurinn sem við spiluðum var vægast sagt lélegur fáranlega heitt og eins og flestir vita þarf ekki mikið til að ég byrji að svitna og eftir leikinn var ekki þurr blettur á stuttbuxunum mínu eða treyjunni, þvílíkt huggulegt.
Svo ermikið búið að gerast á klakanum, Bræðurnir Eymundur og Andri áttu afmæli og vil ég bara óska þeim til hamingju með það en þeir eru nú langt komnir á þrítugs aldurinn sem er frábært og ég er búinn að heyra af sögum um að Andri og Kolla séu að fara gifta sig og lítill sælkeri sé á leiðinni bráðum... eitthvað til í þessu?? Svo er maður alltaf í sambandi við Arinbjörn og hann segist vera á fullu í skólanum og einhverjum vísindaferðum sem alltaf góð blanda segir Arinbjörn.
Svo er Þakkagjörðarhátíðin hérna á miðvikudaginn sem þýðir að allir fara heim og ég mun fara heim með einum gaurnum úr liðinu sem heitir Matt og ég hlakka soldið til því að það mun vera chillað svo mikið og étið svo mikið að það er ekki einu sinni fyndið. Svo talaði ég við mömmu í gær og sagði henni að byrja að baka smákökurnar því að þegar ég kem á klakann aftur þá mun ég sko éta þær...
Svo er ég wins og Eymi bara peð í "stóra tölvulánasvindlinu" en það er að Gaui sem var með mér í bekk back in the days er að kaupa fartölvur í Elko á okkar nafni er ekki alveg viss hvernig hann gerir það en mamma fékk bara reikning sendann heim til okkar um að ég keypti tölvu á 270.000 og mamma náttueulega í algjöru sjokki. En mamma er búin að kæra sem og Eymi og allir þeir sem eru búnir að lenda í þessu.
Í kvöld er svo fyrsti leikurinn í leiktímabilinu, svo er leikur á morgun og á þriðjudaginn, fullt að gera og ég er ekkert smá spennutr, en ég held að það sé kominn til til að slútta þessu!!

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Usss usss bara allt ad gerast hjá kalli !! vaeri ég til í ad taka tatt í svona
Þakkagjörðarhátíð,tú faerd tér feitan bita af kalkún fyrir mig kall.Big Ó

9:13 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hvað á ekkert að fara með Heather og hitta fjölskylduna?

3:41 AM  
Anonymous Anonymous said...

Andri þessi hátið er bara snilld +eg stefni á 3 kg a.m.k.
En nei ég er ekki að fara hitta neina familiu strax....

1:29 PM  
Anonymous Anonymous said...

Fékk mamma þín þá bara gíróseðil eða var gaurinn búinn að borga tölvuna? Hvenær kemurðu á klakann? :)

1:06 PM  

Post a Comment

<< Home