Monday, November 20, 2006

Um helgina spiluðum við 2 leiki og vá hvað ég spilaði illa. Við unnum fyrri leikinn með 40 stigum þannig ég spilaði bara skitnar 12 mín, skoraði 6 stig, en var ekkert spes. En seinni leikurinn átti að vera erfiðari og hann var það svo sannarlega. Við töpuðum honum með 8 stigum, og þetta var örugglega einn sá lélegasti leikur sem ég hef nokkurn tímann spilað, ég spilaði 23 mínutur, tók eitt skot, skoraði ekki stig, tók nokkur fráköst og var hreint út sagt ömurlegur.
Á morgun er annar leikur á móti enn betra liði og það er ekki séns að ég mun spila jafn illa og í síðasta leik og ég ætla mér að standa mig. Ég vill minna fólk á að KR er á toppi deildarinnar heima og allt stefnir í að KR vinni þessa blessuðu deild, ekkert smá sáttur með þá.
Í kvöld fór ég og Matt á Charlotte Bobcats á Dallas Mavericks, sem var mjög gaman við ætluðum að kaupa miða á 60 dollara sem eru um 4000 kall, en við hittum gaur sem var að selja miða á götunni og við fengum miðanna á 30 dollara eða 2000 kall. LEikurinn endaði með sigri Dallas og Dirk var með 24 stig, ég tók fullt af myndum og þær verða settar inná síðuna eftir nokkra daga.
En ég skrifa um leikinn á morgun eða eitthvað, en svo vill ég minna á að maður stefnir á að koma heim á klakann þann 19 des eldsnemma um morguninn....

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Saelir kútur sjálfur kem ég 19 des bara svona ad láta vita af tví.tú verdur samt eflaust kominn eitthvad fyrr enn ég.Og tad má vel vera ad tú komir heim med six pack og olla med kúlurass var tad ekki ?aftur á móti kem ég gegnum tanadur fram á vor og einsog Andri sagdi tá er six pack undir feldi :-)
kv.Big Ó

8:45 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hvað á svo að stoppa lengi??? Gengið er svo að fara út að borða 22.des á ekki að gera ráð fyrir þér litli minn? ;)

3:11 AM  

Post a Comment

<< Home