Friday, January 05, 2007

Tími til kominn

Ég er búinn að reyna að skrifa eitthvað á þetta blessaða blogg nokkrum sinnum en ég fer alltaf að gera eitthvað annað og gleymi þessu alltaf. Það er allt að gerast hjá manni hérna í Salisbury, eina sem maður gerir á daginn er að æfa, sofa og éta. Nokkuð gott combo en skólinn er ekki byrjaður hjá okkur þannig það eru ekki margir á campusnum sem er líka mjög gott því að það er svo rólegt hérna. En á mánudaginn opnar skólinn aftur og á miðvikudaginn byrja svo tímarnir og vá hvað ég er ekki að nenna að byrja aftur í skólanum!
Karfan gengur mjög vel og loksins er allt að ganga upp hjá okkur, við erum búnir að vinna 4 leiki í röð og það á móti nokkuð erfiðum liðum. Ég er búinn að spila á milli 6-20 mínutur í leik og er alltaf að skora eitthvað smá og ég er bara nokkuð sáttur með mig þessa stundina. Recordið okkar er 6-6 núna og við unnum fyrsta leikinn í riðlinum á heimavelli í framlengingu og allir leikir í riðlinum eru mjög mikilvægir því að það eru bara 16 leikir í riðlinum og við þurfum helst að vinna 13 til að vinna riðilinn og fá ógeðslega hringinn. Loksins loksins erum við byrjaðir að spila eins og við getum spilað, maður er alveg kominn með nóg af töpuðum leikjum og béskotans hlaupum á æfingum.
Ég er búinn að fara tvisvar heim til Heathers til að hitta fjölskylduna hennar en það tekur um tvo og hálfan tíma að keyra þangað. Hún býr í bæ sem heitir Asheville og er virkilega fínn bær, við fórum bara út að borða og tókum því rólega ég skemmti mér bara virkilega vel. Auðvitað elskuðu foreldrarnir hennar mig eins og allir gera.
Gamlárskvöld var ekki nógu spes hjá mér þetta árið því að það var æfing klukkan 11 um morguninn á nýársdag!! Ég kíkti í party með einum gaurnum í liðinu og auðvitað fékk maður sér nokkra til að fagna nýja árinu. En partyið var hjá einhverri fáranlega ríkri stelpu og húsið var sko asnalega stórt og flott bara ekta amerískt party.
Næsta vika á eftir að vera virkilega erfið því að það eu 3 leikir og 4 æfingar og skólinn er að byrja aftur, þetta er ekki alveg nógu spes vika en vonandi á okkur eftir að ganga vel í leikjunum...

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Blessaður hundur. Gaman að fá loksins færslu. Er búinn að fara á síðuna á hverjum degi síðan þú fórst aftur til USA.

Til hamingju með alla sigrana! Vonandi er þetta bara byrjunin á sigurgöngunni ykkar. Good luck Finnsla! ;)

3:27 AM  
Anonymous Anonymous said...

hahaha hittirðu bræður Heather ?
kv. Arinbjörn

4:43 PM  
Anonymous Anonymous said...

Hringinn heim.

Smore

5:02 AM  
Anonymous Anonymous said...

Það er farið að verða langt á milli færsla lilli!

1:52 AM  
Blogger andrjo said...

sælir gott ap þið séuð byrjaðir að vinna eitthvað. Ég held að ein sem vantaði var bara að koma heim og drekka mikið af bjór, þú varst bara kominn í of gott form

6:06 AM  

Post a Comment

<< Home