Friday, January 18, 2008

Við unnum síðastliðinn miðvikudag, en við unnum Brevard á heimavelli með 11 stigum en þeir voru ekki mjög góðir. Ég setti 10 stig og tók 5 fráköst á 10 mínútum, núna hlýtur að koma að því að ég fái að spila meira en ég meina í síðustu tveim leikjum er ég búinn að spila samanlagt í 20 mín og skora 17 stig! Ég tel það bara vera nokkuð gott.
Síðasta laugardag spiluðum við útileik á móti Mars Hill og unnum hann með einhverjum 10 stigum en útaf einhverjum ástæðum spilaði ég 6 minutur og ekkert í seinni hálfleik en ég skoraði ekki en var ekki mikið að snerta boltann í sókninni, en ég tók 3 fráköst. En þessi skóli var ekki með neinn alvöru stórann mann þannig að þeir spiluðu bara með litla menn og ég var ekki alltof sáttur með það en þjálfarinn treystir mér ekki að spila á móti minni mönnum enda er ég ekki beint sá sneggsti í boltanum.
Eftir leikinn þá fór ég heim til Heathers því að hún býr í bænum sem Mars Hill er í. Þar var bara slakað á því að það var enginn æfing á sunnudeginum og enginn skóli á mánudeginum vegna þess að það var Martin Luther King jr. dagur sem þýðir að allir skólar séu í fríi.
Á morgun er svo heimaleikur á móti Lincoln Memorial og ef við vinnum hann erum við 3-2 í riðlinum.
Svo er það staðfest að gamla settið er að koma í febrúar! Hlakka mikið til að sjá þau

6 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Jæja, ákvað að skilja eftir eitt komment. Langar samt að fá blogg um eitthv annað en körfu:D
Kv
Hildur

4:41 PM  
Blogger andrjo said...

Hildur hann er þarna vegna körfunar!!!
Hann á ekkert líf fyrir utan körfuna nema það sem hann gerir með Heather sem er bannað börnum eða þannig býr maður til börnin.kv. Andri

2:28 AM  
Anonymous Anonymous said...

ok, biðst afsökunar á þessu vitlausa kommenti frá mér hehe
Kv
Hildur

11:18 AM  
Blogger Hnossgætið said...

Það er augljóst að þú spyrð bara þjálfarann þinn hvort það sé ekki kominn tími til að hann haldi kjafti og sýnir honum svo hvernig á að dönka yfir þessar kanínur sem þú ert að spila á móti.

Smore

5:40 AM  
Blogger Unknown said...

louis vuitton outlet
michael kors
hollister clothing
louis vuitton outlet
nike nfl jerseys
michael kors outlet
cartier watches
michael kors outlet online
north face outlet
rolex watches
louis vuitton
coach outlet
burberry outlet online
canada goose outlet
louis vuitton
kobe shoes 11
louis vuitton
ray bans
christian louboutin outlet
cheap jordan shoes
coach outlet store online
ugg boots
gucci handbags
cheap jerseys
longchamp bags
michael kors handbags
burberry outlet
cheap jordan shoes
toms shoes
jordan 13
burberry outlet online
coach factory outlet
michael kors outlet
ray bans
michael kors
ray ban sunglasses
coach outlet
cheap ray ban sunglasses
nike outlet
ray ban sunglasses
20164.13wengdongdong

11:49 PM  
Blogger Unknown said...

شركة امست للتنظيف بالجبيل
شركة كشف تسربات المياه بالجبيل

7:32 AM  

Post a Comment

<< Home